Þessa síðu eiga systurnar Birna María og Erla Hrönn
Verið velkomin að kíkja á heimasíðuna okkar


Um mig:
Birna María fæddist þann 19. janúar 2007 á sjálfan bóndadag. Hún var aðeins búin að láta bíða eftir sér en það er líka það sem sannar prinsessur gera. Birna María er rosalega dugleg stóra systir og er ótrúlega góð við systur sína. Hún æfir fimleika með Fylki og er sannkölluð fimleikadrottning. Birna María er rosalega skýr og flott stelpa. Henni þykir rosalega gaman að teikna og spáir mikið í stöfunum og tölustöfum. Henni þykir einnig mjög skemmtilegt að perla og láta lesa fyrir sig.

Erla Hrönn fæddist 26. nóvember 2011. Hún var rosalega stundvís og mætti á settum degi. Erla Hrönn er alveg agalega vær og góð alltaf. Best þykir henni að sofa og er algjör svefnpurka. Hún lætur lítið fyrir sér fara nema einstaka kvöld en þá vill hún stundum láta dekra smá við sig. Erla Hrönn ætlar svo að byrja í ungbarnasundi þegar hún hefur stækkað aðeins meira og kemur til með að verða algjör sunddrottning :) Mamma og pabbi og Birna María eru svo ótrúlega stollt af þessari nýju viðbót í fjölskylduna.





Annað:
Mamma mín heitir Helga Jóhanna Harðardóttir og er fædd árið 1984. Pabbi minn heitir Unnar Hólm Ólafsson og er fæddur árið 1981. Bæði mamma og pabbi eru fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, þannig að ég er sko vestmannaeyingur í húð og hár :). Pabbi minn er lærður rafeindavirki og er núna í Háskólanum í Reykjavík að læra rafmagnstæknifræði. Mamma mín er menntaður kennari og er að kenna í Ingunnarskóla.


Móðuramma mín heitir Anna María Kristjánsdóttir og er kölluð Maja. Móðurafi minn heitir Hörður Þórðarson og er kallaður Höddi. Mamma mín á líka eina systir sem heitir Kristjana Margrét og hún er gift Bjarna Sigurðsyni og þau eiga saman hundinn Sambó :)

Föðuramma mín heitir Birna Soffía Björnsdóttir og föðurafi minn heitir Ólafur Gíslason. Pabbi minn á líka systir sem heitir Elfa Ásdís og kærastinn hennar heitir Bjarni Sigþór og svo á pabbi minn líka einn bróðir sem heitir Arnór Eyvar.

Ég er fyrsta barnabarn í báðum fjölskyldum og er sko svo sannarlega ofdekruð af ömmum mínum og öfum mínum :)


STEINGEITIN

22. desember - 19. janúar

Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.